Heimur Sigrúnar
Loksins nýtt bloggSigrún Hannesdóttir
Jæja þá ætla ég að gera enn eina tilraun til að skrifa hérna blogg en það bara kom ekki bloggið sem ég var búin að skrifa.En já þá er skólinn hjá mér búin og ég náði öllum prófunum nema ensku en það verður bara að hafa það e´g næ henni bara á næstu önn. En ég er allavegana komin í sumarfrí frá skólanum en ekki einhverju öðru.
Grunnskólinn hér í Mosó er að klárast á föstudaginn næsta eða er bara út þessa viku þannig að ég verð bara að vinna í skólaselinu út þessa viku sem eru ekki nema 3 dagar eftir.Föstudagurinn verður nú ekki það strembinn því það er síðasti dagurinn fyrir krakkana og það verður eitthvert húllum hæ á skóla lóðinni seinna um daginn þannig að þau verða nú ekkki það lengi í selinu hjá okkur þá.
En svo á laugardaginn kl 7 um morguninn þá byrja ég í sumarvinnuni minni og það er í Olís hérna í Mosó og það verður bara unnið og unnið í allt sumar ekkert sumarfrí ekki neitt eða lengsta fríið mitt er 3 daga vaktafrí og það kemur fyrir einusinni og ég er bara fegin að það er um helgi þannig að við getur gert eitthvað í þessu langa frí, annars er ég bara í 1-2 daga fríi í allat sumar eða að 14 ágúst. En það er bara fínt því þá fæ ég pening til að eiga fyrir næsta vetur þegar ég fer í skóla því að ég veit ekki hvað ég get unnið mikið þá.
Ef það er einhverjir sem vilja kíkja í heimsókn í sumar þá er það bara að hringja og athuga hvort ég verð að vinna þann dag. En fyrri part sumars þá verð ég að vinna vaktavinnu og það er þannig að ég er stundum í fríi um helgar og stundum í fríi inní miðri viku en þessar frí helgar mínar ætlum við að reyna að gera eitthvað skemmtilegt því það er ekkert skemmtilegt að vera bara stundum í fríi umhelgar og gera svo ekkert um þær helgar. En svo seinnipart sumars þá verð ég bara að vinna á virkum dögum og þá í fríi um helgar. Það verður bara fínt því þá getum við gert eitthvað um helgar.
Annars er ekkert að gerast nema það að ég er að bíða eftir símtali til að vita hvort það sé hægt að gera við tölvuna mín því hún er ónýt eða biluð.
En jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Endilega kvittið fyrir komuna það er bara gaman að vita hverjir kíkja hér inn, en ég skil það alveg að einhver hafi ekki kíkt hérna inná lengi því það er svo langt síðan ég bloggaði síðast.
löngu komin tími til ađ skrifa hérna inná held ég bara....Sigrún Hannesdóttir
Góðan daginn hér á bæ. Það er orðið dálítið langt síðan ég skrifaði eitthvað hérna inná þannig að ég ákvað að koma núna og skrifa aðeins um lífi og tilveruna hér á bæ.Skólinn hjá mér er búin og prófin líka og ég náði öllu nema enskunni. Ég er alveg sátt við það nema það að ég hefði auðvitað viljað ná enskunni líka en það kemur bara næst. En það er mjög gott að vera komin í sumarfrí úr skólanum það er að segja en ekki almennilegt sumarfrí.
Grunnskólinn hér í Mosó verður út þessa viku og þess vegna fer ég að hætta að vinna í skólaselinu hér eða síðasti dagurinn minn er á föstudaginn. Sá dagur verður nú sennilega ekki mjög erfiður því þetta er lokadagurinn og það verður eitthvað húllum hæ hjá krökkunum úti á skólalóðinni. En svo á laugardaginn kl 7 um morguninn þá byrja ég að vinna í sumarvinunni minni sem er á Olís hér í Mosó og ég fæ ekkert frí, eða jú lengsta fríið mitt í sumar verða 3 dagar en annars verða þetta bara 1 eða 2 dagar þannig að við þurfum að plana þessar helgar sem ég er í fríi í sumar til að gera eitthvað skemmtilegt ég meina það er ekkert skemmtilegt að vera í fríi yfir helgar og vera svo bara ekki að gera neitt...
Svo er svosem ekkert að frétta hjá okkur bara að vinna og hafa skemmtilegt. Nema það að jú tölvan mín er í viðgerð eða það er verið aða athuga hvort það sé hægt að laga hana þannig á meðan þá næli ég mér bara í tölvuna hans Magnúsar til að kíkja á póstinn minn og eitthvað skemmtilegt.
Um síðustu helgi var hvítasunnuhelgin og þá fórum við Magnús austur hann í landið til foreldra sinni og ég á Selfoss til minnar fjölskyldu. Svo á mánudeginu eða á öðrum í hvítasunnu þá fórum við Alexía Björk saman í smá bíltúr og lentum uppi í landi hjá Magnúsi og fjölskyldu og það fannst Alexíu gaman. Hún hitti litlu frænku hans Magnúsar sem er jafn gömul og hún og þær fóru að leika sér saman í rennibrautinni og rólunni.
Svo þegar við komum heim þá fórum við bara fljótlega að borða og svo í eftirmatnum þá missti Alexía sína fyrstu tönn og það fannst henni furðuleg tilfynning að vera allt í einu með gat þar sem tönnin átti að vera. En hún setti hana auðvitað undir kodda svo að tannálfurinn gæti tekið hana.
Annars er nú ekki mikið að ske hérna hjá okkur nema það að ég er bara að vinna á daginn og Magnús líka þannig að það er bara vinna hjá okkur á fullu. En ég vil bara segja við ykkur sem langar að koma í heimsókn í sumar þá þurfið þið bara að hringja og ath hvort ég sé að vinna þann dag sem þið ætlið að kíkja því að ég er að vinna mjög mikið. Núna fyrri part sumars þá er ég að vinna vaktavinnu og er þá stundum í fríi um helgar og stundum inní miðri viku en hins vegar seinni part sumars þá er ég bara að vinna í virkum dögum og fríi um allar helgar.
En jæja þá held ég að þetta sé orðið gott í bili, en það er alltaf gott að sjá hverjir kíkja hérna inná hjá mér. Ég skil það ef einhverjir eru byrjaðir að minnska það því það er orðið dálítið langt síðan ég bloggaði síðast.
Er bara í skólanumSigrún Hannesdóttir
Mér leiðist hérna í skólanum ég var í stærðfræði í morgun eða í fyrsta tímanum og á ekki að mæta í tíma næst fyrr en klukkan 11:10. Ég er bara að vona að ég verði ekki í svona löngu gati næstu önn...En annars er ekkert að frétta hjá okkur svosem nema það að ég er bara með svakalegt kvef og hálsbólgu og kvefið er það mikið að ég heyri mjög takmarkað og ég var að losna við svakalegt írskur eða eitthvað álíka úr eyranu í morgun og þá búin að vera með það síðan á mánudaginn ekkert svakalega gaman. Sumardagurinn fyrsti er eftir viku eða á fimmtudaginn eftir viku
Þá vonandi kemur sólin og skín eitthvað aðeins meira en hún hefur verið að gera síðustu daga. En það er eitt að ég vil að sólin komi fyrir alvöru þegar ég er búin í prófum því þá þarf ég ekki að vera inni að læra í góða veðrinu það má vera rigning fyrir mér þegar ég er að læra fyrir próf. En talandi um prófin þá get ég kannski sloppið við eitt próf sem er næringarfræðin sem verður bara gott þá þarf ég ekki að taka 2 próf á sama deginum sem er ekkert gaman þótt það gekk í fyrra. En núna er ég í svo erfiðum áföngum eða áföngum sem mér gengur illa í og svo reyndar koma áfangar sem mér gengur vel í inná milli en það er bara að vona að ég nái öllum prófunum þá verð ég mjög sátt... En svo er pabbi farinn úr landi aftur en hann fór í gær þannig að hann er einhvers staðar á leiðinni til Danmerkur. Það hefði bara verið best ef hann hefði ekkert farið út en við systurnar ráðum því víst ekki en við ætlum ekki að láta stoppa okkur og fara út til hans í sumar þegar við erum búnar að safna okkur fyrir ferðinni sem verður bara gaman ég er eiginlega bara strax byrjuð að hlakka til að fara út í góða veðrið, ég meina það er strax orðið gott veður þarna.
En ég veit ekki hvað ég á að skrifa meira þannig að ég ætla bara að hætta en endilega taka þátt í skoðunarkönnunni því ég er í vandraðum hvernig ég á að lita á mér háriðþ. Ég er með svona valkvíða um að velja lit á hárið
löngu komin tími fyrir bloggSigrún Hannesdóttir
Það er löngu orðið tímabært að skrifa hérna einhverjar fréttir held ég bara...Það er alveg fullt búið að gerast síðan ég skrifaði hérna inn síðast. Síðast þegar ég skrifaði þá var það þegar við vorum að fara að borða hjá Guðfinnu og pabba eða þegar pabbi bauð okkur systrunum í mat á Selfoss. En annað en bara að vera í skólanum og að vinna þá er ég búin að eiga afmæli og þá hélt ég smá afmæliskaffi á sunnudeginum 15. mars og þá komu mamma og pabbi, Guðfinna og krakkarnir og Margrét svo komu fjölskyldan hans Magnúsar og amma hans og afi. Ég fékk mjög fínar afmælisgjafir til dæmis fékk ég rjómatertu frá pabba, Guðfinnu og fjölsk. og Margréti. Þar sem ég vissi auðvitað ekki að þessu þá auðvitað bakaði ég nóg en það var alveg fullt afgangs þannig að ég bauð nokkrum vinkonum mínum í afganga á afmælisdaginn sjálfan. Svo gekk bara vikan sinn vanagang bara skóli og vinna.
En svo helgina eftir fæ ég svona svakalega illt í ennið og hélt í fyrstu að bólu væri um að ræða en svo var ekki því hún stækkaði bara og stækkaði og mér varð meira og meira illt í þessu. Svo áður en ég vissi af á laugardeginum þá var hálft ennið á mér eiginlega bara þrefalt ég var svo bólgin. Ég þorði engu öðru en að fara til læknis og láta skoða þetta aðeins og þá sagði læknirinn að það væri sýking í enninu á mér og það er ekki gott að fá svoleiðis. En hann lét mig fá eitthvert krem til að bera á þetta svona sýklalyf því hann vildi ekki láta mig fá í töfluformi því að það getur valdið svo hrikalega leiðinlegum aukaverkunum. En svo um kvöldið var þetta bara að versna þannig að ég hringdi aftur í lækninn og þá lét hann mig fá sýklalyf á töfluformi. Ég tek það og allt gengur vel þangað til á sunnudeginum því þá verð ég svo slöpp og verður svo heitt að það sé einsog eg var í gufubaði í öllum fötunum. Ég fer svo til læknis á mánudeginum eftir og læt skoða þetta betur og hann sendir mig í blóðprufu til að athuga hvort sýkingin sé komin í blóðið. Ég beið til að vita hvað ég fengi úr þessu og á meðan fékk ég þessa líka svakalegu eitlabólgu hægra megin að ég gat ekki borðað varla talað og leið einsog ég væri komin með eyrnabólgu. En þetta er sem betur fer búið nema það að ég er búin að vera með hausverk daglega síðan ég fékk þessa sýkingu sem er EKKI gott get ég sagt ykkur. En vonandi er það ekkert sem tengir þessu. Þegar þetta ævintýri er búið þá er bara komin mánudagurinn síðasti og þá er ég orðin góð og þá byrjaði skemmtilegt verkefni í sas (samskipti) það var að allir áttu að velja sér eina menningu eða land g fjalla um það. Ég ákvað að velja að fjalla um Frumbyggja Ásrtalíu og það gekk bara vel og vá það er alveg fullt sem ég vissi ekki um þá sem er satt.
En svo er ég bara komin í páskafrí en það er samt alveg nóg að gera til dæmis gengur mér ekkert svakalega vel í efnafræði þannig að ég ætla að byrja aðeins að lesa í því fyrir lokaprófið og svo ætla ég líka aðeins að lesa í stærðfræði því það er ekki eitthvað sem er auðvelt. Svo er auðvitað alveg að koma sumar og þá ætlum við Magnús að ferðast saman og við ætlum að gera upp gamlan ford ecoline sem afi hans á og við ætlum að byrja á því núna í páskafríinu okkar því hann Magnús er líka kominn í páskafrí. Svo ætlum við auðvitað að gefa okkur tíma til að kíkja á Selfoss, ég meina verður maður ekki að gera það líka.
En það er annars mikið að gera hjá okkur næstu vikurnar, núna í dag er afmæli hjá bróðir hans Magnúsar og við förum auðvitað í það og svo á fimmtudaginn (skírdagur) þá förum við í fermingu hjá frænku hans Magnúsar, svo koma bara páskar en svo annan í páskum þá förum við í afmæli hjá frænkum hans Magnúsar og sennilega á Selfoss í mat og svo bara miðvikudaginn eftir það byrjar skólinn hjá mér en svo helgina eftir þá er afmæli hjá henni Alexíu Björk sem við förum í, svo helgina eftir það eða eftir sumardaginn fyrsta þá erum við að fara í sumarbústað við vinum okkar sem búa á Selfossi þannig að helgina sem Alexía Björk verður með afmæli sem er á sunnudeginum þá ætlum við kannski að kíkja bara á laugardeginum og vera bara á Selfoss um nótt við þurfum bara að reyna að blikka annað hvort Margréti eða Guðfinnu
En jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili ég ætla að fara að byrja að gera þessa blessuðu skýrslu sem ég þarf að gera í efnafræði.
Endilega kvittið fyrir komuna, það er svo gaman að sjá hverjir kíkja hingað inná
smá fréttirSigrún Hannesdóttir
Jæja þá er komin smá tími til að blogga smáÞað er nú ekki mikið að frétta hjá okkur það er bara skóli og vinna. Reyndar er ekki mikið að gera hjá mér í skólnum aðeins að byrja núna með skilaverkefnum og skýrslum en það reddast alveg.
Um síðustu helgi þá fórum við Magnús á Selfoss í mat til Guðfinnu en pabbi var að flytja heim
ogþað eru allir mjög ánægðir með það og við kíktum á hann á sunnudaginn síðasta. En svo er ég að fara á Selfoss á morgun er að fara til tannz og með tölvuskjá til pabba sem tengdafreldrar mínir ætla að gefa honum. En svo er bara að koma að því að ég eigi afmæli það er bara eftir helgi þannig að ég ætla að hafa smá kaffiboð hérna heima bara fyrir fjölskylduna. Svo er bara komið vor held ég bara snjórinn að fara komið betra veður úti og það er orðið bjart á morgnanna þegar maður er að vakna um 7-7:30 og það segjir bara að það sé alveg að koma sumar. Sem verður gott þá getur maður farið að vinna sér inn peninga fyrir næsta vetur til að eiga og svo ætlum við Magnús nú líka aðeins að ferðast í sumar ekki ákveðið samt hvert eða hvenar en það kemur nú vonandi bráðlega í ljós.
En annars er nú ekki mikið að frétta hjá okkur bara þetta sama skóli og vinna. Þannig að ég held að ég hafi þetta ekki lengra í bili því ég ætla mér að fara snemma að sofa því við erum algjörlega búin á því eða allavegna ég. Ég er búin að sofa svo lítið í viku sem er ekki nógu gott og ég ætla sko að vona að ég geti nú sofið eitthvað lengur um helgina en ég er búin að gera núna í vikunni.
stutt og laggottSigrún Hannesdóttir
Góðan daginn hvað segjir fólkið þá?Ég persónulega segji bara mjög gott. Reyndar ekki mjög mikið að ske hjá mér en það er samt eitthvað smá. Ekkert að gerast í skólanum ekkert að læra það eina sem er að gerast er að það verða Árdagar í næstu viku. Þá verður svo aðeins kryddað uppá dagana. En á þriðjudaginn þá er furðufatadagur og svo á maður að velja eitthvað 2 sem verður í boði þá en það er bara svo mikið sem er í boði að það er erfitt að velja. En ef maður tekur ekki þátt í neinu fær maður F í kladdann fyrir allan daginn. Svo á miðvikudaginn þá er útivistardagur eða þá verða farnar ferðir útum allan bæ. Ég og Ása vinkona mín ætlum að kíkja á sjúkrahúsið sem verður örugglega bara gaman en þá verðum við búnar í skólanum kl 12 þann daginn. Svo á fimmtudaginn þá verður sparifatadagurinn mikli því að árshátíðin er um kvöldið og þá verður maður auðvitað að vera fínn í klæðum ekki satt.
Svo á föstudeginum er bara frí eða svna hvíldardagurinn mikli. Ég er samt eitthvað kvefuð og eitthvað ömurlegt þannig að ég er að vona að ég verði bara ekki lasin í næstu viku.
En það sem er búið að gerast er að um síðustu helgi fórum við á Selfoss á sunnudeginum í bollukaffi til Guðfinnu og borðuðum svo hjá henni um kvöldið, annars var nú ekki mikið gert um þá helgi. En svo vikan er bara búin að vera róleg bara vinna og skóli. En svo í gær þá fórum við í leikhús með tengdaforeldrum mínum, bróðir Magnúsar og vinum okkar og við fórum að sjá Sannleikann sem er einleikur með Pétri Jóhanni. Þetta var alveg æðislega gaman og við skemmtum okkur alveg æðislega vel. Það hlógu allir í salnum allan tímann og Pétur Jóhann er svona að gera grín af sjálfum sér ásamt mörgum öðrum. En ef ykkur langar í leikhús og úr því að Laddi er hættur með sína síningu þá mæli ég eindregið með að sjá þessa síningu.
Ég veit svosem ekki hvað ég á að segja meira. Ég er sv bara að koma á Selfoss föstudaginn 13. mars sem er einmitt föstudagurinn áður en ég á afmæli það er bara farið að styttast í það. En ég er alveg búin að ákveða hvernig ég ætla að hafa afmælið mitt ég ætla bara að hafa það einsog í fyrra bjóða fjölskyldunni heim í kaffi á sunnudeginum og bjóða svo vinkonum í smá kvöldkaffi á afmælisdaginn.
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.
ekkert ađ skéSigrún Hannesdóttir
Jæja hvað segjiði um smá blogg?Það er nú ekki mikið að gerast hjá okkur þessa dagana en samt eitthvað smá og ég var að hugsa að skrifa aðeins um það svo að þið getið aðeins fylgst með.
Fyrir viku síðan eða á þriðjudaginn í síðustu viku þá var ég bara að koma í skólann og allt í einu fékk ég líka þennan svakalega sársauka í ristina og það lagaðist ekkert það bara versnaði. Svo á fimmtudaginn þá ákvað ég að fara til skólahjúkkunar og láta hana kíkja á ristina mína því þetta var ekkert að lagast bara að versna þannig að hún sagði mér að fara beint á slysó strax eftir skóla. Ég fór uppá slysó og þar tók læknir á móti mér og skoðaði mig nú ekki mikið og sagði bara að ég ætti bara að fara heim og éta verkjatöflur og vona það besta. Ég var nú ekkert sátt við það þannig að ég fór til læknis hér í Mosó og hann sagði að ég ætti að bíða yfir helgina og ef það lagaðist ekki þá ætti ég að koma aftur á mánudaginn. Svo seinnipartinn á föstudaginn þá kom kraftarverkið í heimsókn til mín og það lagaðist en það er nú ekki alveg farið en ég get allavegana verið í skónum mínum og ég get stigið í löppina sem ég gat ekki í síðustu viku þannig að ég er bara góð í löppinni og er mjög sátt við það. Í síðustu viku þá byrjuðu próf hjá mér og síðasta prófið er á mánudaginn næsta. Á þriðjudaginn þá fór ég í prufupróf í næringarfræði og ég fékk í því 5,3 og jú ok ég var alveg sátt því mér gekk þó betur en á síðustu önn en svo fór ég í "alvöru" prófið á fimmtudaginn og þá hækkði ég mig uppí 7,1 og vá ég var svo sátt og er varla að trúa þessu að mér gekk svona vel. Svo er ég búin að vera ein heima öll kvöld því að Magnús er búinn að vera á rútuprófsnámskeiði öll kvöld þannig að ég er bara búin að vera ein heima öll kvöld en það er bara búið að vera gott því þá fæ ég næði til að læra undir próf. En núna þessa vikuna og þá næstu breytist ég í efnafræðikennara eða ég er að hjálpa vinkonu minni að læra og skilja efnafræði og það er bara gengur ágætlega eða dagurinn í dag var fyrsti dagurinn og þetta gekk bara vel.
Svo er bara að koma mars og þá gerist nú mikið það fyrsta er nú að þá á ég afmæli og verð 22 ára (ji hvað maður er að verða gamall eitthvað) svo á vinkona mín afmæli og ætlar að bjóða vinum sínum í bústað og ég og Magnús ætlum að kíkja með henni. En svo verða einnig Árdagar í skólanum og þá verður bara kennt 2 fyrstu tímana á þremur dögum og vitið menn að ég þarf bara að mæta í 2 tíma á þessum þremur dögum. En svo föstudagurinn 6 mars verður frí í skólanum þannig að ég verð í fríi þangað til ég fer að vinna sem er klukkan tvö sem er svosem fínt að fá aðeins að sofa út. Svo þann 13. mars þá er ég að koma á Selfoss til tannza en ég kem strax eftir skóla og fer beint til tannza og kíkji svo auðvitað til mömmu og Guðfinnu aðeins að segja hæ úr því að ég er nú á staðnum. En svo í apríl þá förum við aftur í bústað og þá er það við Magnús og vinir okkar eða eitt annað par svona aðeins að hafa gaman. Svo er bara að koma sumar og þá ætla ég bara að vera að vinna en við Magnúsi langar auðvitað að fara í sumarfrí saman þannig að ég ætla að taka svona 2 vikur í frí svo að við getum farið eitthvað saman í sumar.
En ég ætla að hafa þetta gott í kvöld.
Smá bloggSigrún Hannesdóttir
jæja hingað er ég komin til að skrifa eitthvað skemmtilegt vonandiEn ég veit svosem ekki hvað ég á að skrifa. Um síðustu helgi var ég að vinna alla helgina á olís sem er bara gott því að mig vantar peninga ekki gott að vera fátæur námsmaður í dag. En á föstudaginn þá var ég ein heima því Magnús fór á rútuprófsnámskeið þannig að ég og Ása vinkona mín kíktum saman í bíó og fórum á myndina Bride wars og þetta er sko ekta stelpumynd og mér datt ekki til hugar að bjóða Magnúsi með á þessa mynd ekki alveg fyrir stráka mundi ég segja allavegana. En svo fór ég bara að vinna klukkan 7 á laugardagsmorguninn og var að vinna til fjögur og þá kom ég heim og fór í sturtu og lagði mig í smá stund því við vorum að fara út að borða með vinnunni hans Magnúsar í Perlunni. Við fórum af stað að ná í allt fólkið og fórum svo í Perluna og vitið ef ég á að segja alveg einsog er þá vorum við mjög svo vonsvikin með matinn og þjónustuna þarna í Perlunni. Ég ætla nú ekki að fara að koma með það hérna inná hvernig það var en ef ykkur langar endilega að vita hvernig við upplifðun það þá er það bara að spyrja okkur. En svo var ég að vinna líka á sunnudagsmorgun og þegar ég kom heim fór ég í skátaheimilið hjá Garðbúum og var að stytta stundirnar hjá Ásu. Svo í gær þá fór ég í fyrsta prófið á vetrinum og það gekk bara ágætlega en það var stærðfræði og svo var ég í prófi í dag líka í næringarfræði og fer í próf á fimmtudaginn og svo á mánudaginn og á þriðjudaginn alveg að drukkna í prófum núna þessa dagana.
Í gær þá var ég ein heima og fór í búð og ákvað að vera góð við Tínu og kaupa handa henni bein. Þegar heim var komið og Tína búin að borða eitthvað af beininu en samt ekki klára það alveg kom Magnús heim og fljótlega fórum við bara inní rúm að sofa. Þegar við vorum alveg að sofna þá heyri ég þvílik læti undir rúmi einsog Tína hafi verið að æla og það var rétt hjá mér hún ældi grænu, það er útaf því að beinið sem ég keypti handa henni var með grænu í sem á að vera gott fyrir tennurnar fyrir hana en hún fékk bara svona rosalega í magann og ældi þessu greyið. Magnús var sko ekki hrifinn og við þurftum að baða hana um miðnætti í gær og við sem vorum loksins að fara að sofa fyrir miðnætti en þá þurfti þetta að gerast.
En svo næstu helgi er félagsútilegan hjá Fossbúum og auðvitað ætlum við að kíkja í heimsókn á laugardaginn. Ég meina maður veðrur nú að fara að segja hæ við félagið sitt...
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili
Helgin ađ endaSigrún Hannesdóttir
Jæja þá er helgin að verða búin og ég er bara mjög sátt við helgina.Hún byrjaði þannig að á föstudaginn þá var engin vinna og ég var komin í helgarfrí um hádegi bara þegar skólinn var búin, mjög þægilegt það. Svo kom ég bara heim og beið eftir að Magnús kom heim. Þegar hann var búin að vinna brunuðum við á Selfoss því að við vorum að fara að passa frænkur mínar og frænda. Við byrjuðum á því að kíkja aðeins á mömmu og fórum svo til Guðfinnu og borðuðum þar pizzu frá Hróa hetti hún var bara mjög góð. Svo þegar við vorum búin að borða þá fórum við til Guðrúnar en við vorum að fara að passa krakkana hennar. Kvöldið var bara mjög gott við höfðum það bara notalegt að leika við Tínu með stelpunum en þær voru víst búnar að bíða eitthvað eftir að fá hana í heimsókn og spurði Magnús nokkuð oft hvort hún gæti ekki komið inn strax en við létum hana vera úti bíl á meðan hún þornaði. Svo þegar hún kom inn þá vissi hún ekki hvernig hún átti að vera því hún hélt að hún mætti ekki vera þarna inni og var bara hálfskrítin greyið . Þegar það lagaðist þá fóru Magnús og stelpurnar að leika við Tínu á fullu og var alveg svakalega skemmtilegt. Svo þegar Skúli litli átti að kíkja í draumaheiminn þá var hann ekki sáttur og grét bara á fullu, ég hringdi í mömmu og hún kemur og á meðan hún var þarna (reyndar ekki í langan tíma) þá var Skúli rólegur en um leið og hún lokaði útidyrahurðinni þegar hún var að fara þá byrjaði hann og var ekki sáttur en þá kom Magnús til bjargar og tók hann og það var einsog það hafi einhver komið og ýtt á stp takkan á honum, hann bara þagnaði einsog skot. Svo kom Sigga amma krakkana og tók við þannig að við Magnús kíktum aftur til mömmu á eitthvað dót sem við áttum að kíkja í gegnum. Við fórum ekki heim fyrr en um miðnætti.
Laugardagurinn var þannig að við vöknuðum bara um hádegi því að það átti að vera eitthvað leiðindarveður þannig að við vorum ekkert að plana eitt eða neitt fyrir þann daginn. En það kom annað í ljós það var bara alveg æðislegt veður heiðskýrt og flott. Við drifum okkur á fætur og fórum út í smá jeppaleiðangur uppá Lyngdalsheiði á dótinu (súkkunni) hans Magnúsar. Það var bara mjög gaman en við fórum bara frekar snemma heim og fengum okkur bara gott að borða og höfðum það kósý um kvöldið hérna heima.
Dagurinn í dag eða sunnudagurinn átti ekki að vera eins góður og dagurinn í gær. En þegar við vöknuðum var nánast logn þannig að við ákváðum að skella okkur í smá bíltúr á súkkunni uppá Mosfellsheiði og við gerðum það. Tína fékk að koma með í þetta skiptið en ég held að hún geri það ekki aftur sko. En það var svaka gaman það endaði með því að Magnús festi nánast bílinn og við út og Magnús að moka bílinn upp á meðan ég var að taka myndir og Tína að leika sér í snjónum. Svo lögðum við bara af stað heim á leið sem var meira af hossi. En svo komumst við að því þegar Magnús var að setja meira loft í dekkin eftir þessa jeppaferð að Tína hafi ælt í bílinn útaf öllu hossinu þannig að hún kemur ekki með í svona ferð aftur held ég bara. Hún þolir ekki svona mikið hoss enda fegin að fá að komast út í snjóinn og hlaupa smá.
En jæja þá er þetta komið og ný vika að byrja á morgun og skóli og vinna að byrja
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili
Vel heppanđ kvöldSigrún Hannesdóttir
Jæja þá ætla ég að gera aðra tilraun að skrifa hérna inná, ég var komin með svo mikið og alveg að verða búin að skrifa allt bloggið þegar bara kabúmm allt horfið og mín ekki alveg sátt við það.En já gærkvöldið hjá okkur skötuhjúunum heppnaðist bara mjög vel við vorum bara með venjulegan dag til 5 eða þá komum við heim fórum í sturtu og svo bara steinsofnuðum við bæði í sófanum mjög þægilegt. En kvöldið var ekki svona að við sváfum bara í sóafanum ef þið hafið haldið það. Við gerðum okkur glaðan dag og fengum okkur gott að borða og það sem varð fyrir valinu vara heimatilbúinn Subway bátar mjög gott get ég sagt ykkur. Svo þegar við vorum búin að borða þennan himneska mat þá drifum við okkur út og fórum í 8 bíó í Smárbíó. Við fórum á myndina Viltu vinna milljarð, þetta var svosem ágætis mynd þannig séð en ef ég hefði vitað hvernig þessi mynd væri þá hefði ég svosem ekki farið á hana, en hvað er svosem hægt að vita fyrir fram. Þetta var frekar löng mynd og við vorum að labba útúr Smáralind og klukkan að vera hálf ellefu. En við gerðum svosem ekkert meira við fórum smá á rúntinn og fórum svo bara heima að sofa.
Núna er ég bara í skólanum og er í gati því að ég á eiginlega að vera í næringafræði en þar sem það er núna fitumæling og ég er búin í því ég fór í það á mánudaginn þá er ég í fríi í þessum tíma. Ég er bara fegin að ég fór í mælinguna á mánudaginn því að ég er í þessum tíma í öðru húsi en aðalhúsinu og ég er svona 2-3 mín að rölta þarna yfir þegar það er ekki hálka eða allt á kafi í snjó. Þar sem ég er ekki í þessum tíma í dag þá þarf ég ekkert að fara út nema bara þegar ég fer heim í dag þegar ég er búin í skólanum. En samt svo einn galli við þetta ég kom í skólann kl tíu því að ég átti ekki að byrja í skólanum fyrr en 10:15. Já ég kom um tíu í skólann fór í einn tíma og fór svo í gat og er í gati núna til 12:50 og er búin að vera í gati síðan kl 11:00 ekkert það skemmtilegasta sem ég hef gert og það er ekkert að læra heima þannig að ég tók bara tölvuna með til að blogga aðeins og hafa eitthvað að gera.
Einsog þið kannski sáuð í síðasta bloggi þá get ég minnkað það að hafa gleraugun og viti menn ég hef ekkert haft gleraugun síðan á mánudaginn. Ég kom heim um 4 leytið á mánudaginn og tók gleraugun niður og setti þau í hulstur og niður í tösku og þar eru þau enn. Ég reyndar get ekki notað þau fyrr en ég fæ nýju glerin sem er í næstu viku. Ég er ótrúlega ánægð og ég sé svo vel og æ engan hausverk á að vera gleraugnalaus.
Vikan er hálfnuð og það er að koma helgi. Magnúsi langar að fara á laugardaginn aðeins á Þingvelli og þar eitthvað að jeppast á Súkkunni sinni sem gæti alveg verið gaman. Við munum bara fara á föstudaginn og kaupa nesti og taka svo daginn snemma á laugardaginn og hafa gaman. Annars er ekkert planað fyrir helgina og það er allt á kafi í snjó það er reyndar ekki að snjóa núna en það er búið að snjóa í allan morgun.
Svo á föstudaginn þá verð ég í fyrsta skiptið búin kl 12 og komin þá í helgarfrí síðan ég byrjaði í skólanum. Það er nefnilega lokað í Selinu á föstudaginn því það er eitthvað námskeið fyrir þá sem eru að vinna þar en þar sem ég er í skólanum þá kemst ég ekki þannig að ég er bara búin um hádegi á föstudaginn.
Það er ekkert meira sem ég get sagt ykkur því að það er ekkert að gerast hér í bænum.
